-
Samgöngur á landi
-
Samgöngur á lofti
-
Samgöngur á sjó
-
Fjöldi bíla við Kröflu og Þeistareyki
-
Um vísi
Á myndinni má sjá þróun meðalumferðar á dag á tímabilinu frá 2011-2020. Gögnin eru fengin af vef Vegagerðarinnar.
Umferð jókst á öllum mælipunktum frá árinu 2012. Árið 2017 fór að draga saman á nokkrum mælipunktum.
Nýir fastir mælistaðir bættust við árið 2013 á Fljótsheiði og Dettifossvegi.
Áætlunarflug til Húsavíkur lá niðri til ársins 2012 þegar Flugfélagið Ernir hóf áætlunarflug þangað.
Myndir sýnir hlutfall farþega af heildarfarþegafjölda á flugvöllum á vestur-, mið- og austursvæði. Hlutdeild vallanna fjögurra í heildarfarþegafjölda í innanlandsflugi hefur á tímabilinu aukist úr 26,8% í 30,12% þegar mest var en er á árinu 2023 26,28%.
Gögn eru fengin frá Isavia.
Fylgst er með fjölda farþega- og flutningaskipa sem koma til Húsavíkurhafnar. Gögn eru fengin frá hafnarstjóra hafna Norðurþings.
Engin skemmtiferðaskip komu til Húsavíkur á árinu 2020 vegna kórónuveirufaraldursins. Þá leiddi framleiðslustöðvun PCC BakkiSilicon til þess að flutningaskipum fækkaði úr 65 í 42 á milli ára. Engin farþegaskip komu til Húsavíkur á árinu 2020 en fimm sinnum komu snekkjur til hafnarinnar en þær hafa hingað til verið sjaldgjæf sjón. Ekki liggja fyrir upplýsingar um fjölda farþega í snekkjunum fimm.
Farþegaskipum fjölgaði á ný árið 2021 og voru 21, auk tveggja snekkja, og síðan þá hefur þeim haldið áfram að fjölga . Komur flutningaskipa voru jafnframt tíðari frá árinu 2021.
Myndin sýnir fjölda bíla við Kröflu og Þeistareyki. Gögn eru fengin frá Landsvirkjun sem hefur bílateljara við Kröflu og Þeistareyki.
Mælingar á fjölda bíla við Kröflu hófust þann 10. júní 2016 en þann 23. júní 2016 við Þeistareyki.
Á árinu 2020 dróst bílaumferð til bæði Kröflu og Þeistareykja umtalsvert saman. Heimsfaraldurinn COVID-19 hefur líklega ráðið mestu þar um. Árið 2021 jókst umferð til Kröflu á ný en ferðum fækkaði áfram að Þeistareykjum.
Mikilvægt er að fylgjast með umferð á landi, lofti og sjó á uppbyggingartíma sem og að honum loknum. Með auknum umsvifum í ferðaþjónustu má reikna með auknum umferðarþunga á ákveðnum leiðum. Þá má einnig gera ráð fyrir fjölgun flugfarþega og aukinni umferð á vegum á uppbyggingartíma.
Á hverju ári heimsækir fjöldi gesta virkjanasvæði á Íslandi og nærliggjandi staði. Áhugavert er að fylgjast með þróun umferðar á virkjanasvæðum með tilkomu nýrrar Þeistareykjavirkjunar.
Í vísinum eru birtar upplýsingar um fjölda farþega í flugi á Akureyri, Húsavík og Þórshöfn, um fjölda skemmti- og farþegaskipa í Húsavíkurhöfn og umferðarþunga á völdum leiðum. Leiðirnar eru Víkurskarð, Fljótsheiði, Mývatnsheiði, Norðausturvegur (meðaltal/sólarhringsumferð/sumar/vetur) og Dettifossvegur.
Árlega eru birt gögn sem sýna farþegarfjölda, fjölda skipakoma og umferðarþunga.
Flugupplýsingar eru birtar í apríl, fjöldi skipakoma í janúar og upplýsingar um umferðarþunga eru birtar í mars fyrir árið áður.
Miðsvæði - flug - skip - umferð (Fljótsheiði - Mývatnsheiði - Tjörnes - Norðausturvegur sunnan Húsavíkur)
Austursvæði - flug
Vestursvæði - flug - umferð (Víkurskarð/Vaðlaheiðargöng)
Verkefnisstjóri ber ábyrgð á að afla gagna og birta þau í samræmi við birtingaráætlun.
Gögn eru sótt til Vegagerðarinnar, Isavia, Norðurþings og Landsvirkjunar.