1.3 Jafnrétti kynja

1.3 Jafnrétti kynja

  • Kynjahlutfall á vinnumarkaði
  • Um vísi

Kynjahlutfall á vinnumarkaði

1.3 a. Kynjaskipting sveitarstjórna á Miðsvæði

Á myndinni má sjá að hlutfall kynja í sveitarstjórnum á Miðsvæði hefur á undanförnum árum verið ójafnt. Um og yfir helmingi fleiri karlar hafa setið í sveitarstjórnum á miðsvæði en konur. 

Frumgögn og úrvinnsla

Heimild: Norðurþing, Tjörneshreppur, Þingeyjarsveit

Kynjahlutfall á vinnumarkaði: 1.3 b. Kynjahlutfall í nefndum sveitarfélaga á miðsvæði

1.3 b. Kynjahlutfall í nefndum sveitarfélaga á miðsvæði

Myndin sýnir fjölda karla og kvenna í nefndum á vegum sveitarfélaga á miðsvæði. Kynjahlutföllin eru almennt nokkuð jöfn. Nokkur áranna skera sig þó sérstaklega úr, 2011 fyrir það að þá eru karlar í nefndum fleiri en konur og árin 2013 og 2014 fyrir það að þá eru konur fleiri en karlar í nefndum sveitarfélaga.

Frumgögn og úrvinnsla

Kynjahlutfall á vinnumarkaði: 1.3 c. Kynjahlutfall starfsmanna Landsvirkjunar

1.3 c. Kynjahlutfall starfsmanna Landsvirkjunar

Hér má sjá fjölda karla og kvenna sem starfa hjá Landsvirkjun. Um er að ræða störf í Kröflu og á Þeistareykjum. Hér er ekki er tekið tillit til starfshlutfalls og því ekki um raunverulegan fjölda starfa við virkjanirnar að ræða heldur eingöngu horft til kynja starfsmanna Landsvirkjunar í þessum tveimur virkjunum. Í upphafi árs 2019 voru engir starfsmenn Landsvirkjunar með starfstöð á Þeistareykjum heldur er virkjuninni sinnt af starfsmönnum í Kröflu. 

Í ársbyrjun 2023 voru 28 starfandi í Kröflustöð og sinna jafnframt Þeistareykjavirkjun. Þar af voru 24 karlmenn  og 4 konur. Hvort tveggja körlum og konum hafði þá fjölgað um einn frá því árið á undan. 

Frumgögn og úrvinnsla

Heimild: Landsvirkjun og PCC BakkiSilicon
Upplýsingar sóttar til starfsfólks fyrirtækjanna.

Kynjahlutfall á vinnumarkaði: 1.3 d. Kynjahlutfall starfsmanna PCC BakkiSilicon

1.3 d. Kynjahlutfall starfsmanna PCC BakkiSilicon

Myndin sýnir skiptingu kynjanna í starfsmannahópi PCC Bakki Silicon. Starfsmenn voru 142 í ársbyrjun 2019, 116 karlar og 26 konur en hafði fjölgað í 154 í ársbyrjun 2020, 130 karla og 24 konur. Við upphaf árs 2021 voru starfsmenn PCC 57 talsins, 49 karlar og 8 konur. 

Við upphaf árs 2024 voru starfsmenn 133, 114 karl starfandi við PCC BakkiSilicon en 19 konur. 

Um vísi

Við upphaf vöktunartíma Gaums voru konur í flestum tilfellum færri en karlar í sveitarfélögum í Þingeyjarsýslu. Ójafnvægi í kynjahlutföllum getur haft áhrif á samfélagslegan stöðugleika. Þessum vísi er ætlað að fylgjast með jafnvægi kynjanna á vinnumarkaði.

Í vísinum verða birtar upplýsingar um kynjahlutfall á vinnumarkaði og kynjahlutfall í sveitarstjórnum og fastanefndum sveitarfélaga á svæðinu.

Tíðni

Árlega eru birt gögn sem sýna þróun kynjahlutfalls á vinnumarkaði. Til að byrja með er horft til gagna frá sveitarfélögum á svæðinu ásamt Landsvirkjun og PCC Bakki Silicon. Gert er ráð fyrir birtingu ekki seinna en 15. janúar ár hvert fyrir fyrirtækin en gögn tengd sveitarfélögum eru birt eigi síðar en 15. júní. 

Svæði

Borin eru saman gögn af miðsvæði og Íslandi.

Ábyrgð

Verkefnisstjóri ber ábyrgð á að afla gagna og birta þau í samræmi við birtingaráætlun.

Heimildir

Gögn eru sótt til tiltekinna fyrirtækja (Landsvirkjun og PCC Bakki Silicon til að byrja með) og sveitarfélaga á svæðinu.